Að byrja er góð byrjun!

Dúndur!

26.02.2007 21:00:52 / helgabirgis

Hósti

Spurning: Er ekki hægt að setja banner hérna? Er ég bara blind? hmm..

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 22:45:40 / helgabirgis

Titill

Ég er bara að meika það hérna... Annað bloggið á tveimur dögum... Svona virðist lífið stundum leika við mann. En ég hef bara verið að hugsa um daginn og veginn eins og til dæmis:

Er eitthvað skrítið að mamma mín sé háð bubbles?

Og:

Er það bara mér sem finnst allar Íslendingasögur vera næstum því alveg eins nema bara með mismunandi nöfnum á fólkinu sem þessar stórmerkilegu sögur eru um?

Já þetta eru bara svona hugdettur seinustu mínútna. En ég er farin að lesa í Brennu-Njáls sögu. Jess maður!

NóttNótt

(Pæling: Er ég að blogga of stutt, of leiðinleg og of ómerkileg blogg?)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 13:38:18 / helgabirgis

BollaBolla

Ég var að pæla af hverju verður harður púðursykur mjúkur ef maður lætur brauð ofan á hann?

Ég get ekki ímyndað mér hvað getur verið í brauðinu sem mýkir upp harðann púðursykur en það er örugglega einhver efnaleg skýirng á þessu máli.

Enn ég hef eiginlega ekkert að segja, alveg voðalegt ástand á mér síðastliðnar vikur í þessu blogg-máli.

Ég er í eyðu sem ég ætlaði svo að nota í að fara bara heim og leggja mig en neinei hér sit ég og pæli í púðursykri og horfi á þessa væmnu eða rómantísku mynd sem er svo hallærisleg og leiðinleg að mig langar liggur við að gubba.

Annars var helgin viðburðarrík og skemmtileg, afmæli hjá Erlu og Lilju sem var alveg hörku fjör og svo sjallinn þar á eftir.. Ekki slæm dagskrá á laugardagskvöldi.. En ég ætla ekkert að vera að segja frá því eitthvað meira..

Hérna ef það er einhver sem kann að búa til myspace síðu og dauðlangar til þess að hjálpa mér þá má hann alveg láta mig vita með einhverjum hætti, þetta virðist eitthvað svo flókið..

En annars þá eru örugglega væntanlegar myndir svona einhvern tíman á næstunni svo allir myndaáhugamenn að fylgjast með því..

Svo má ekki gleyma að minnast á bolludeginum sem er einmitt í dag ég er reyndar ekki búin að borða neina en það hlýtur að gerast einhvern tíman í dag.. Já jeij gaman að því...

Já svo skemmtilegt blogg.. Ég ætla að fara að drífa mig í tíma... :)

Allir að kvitta því að þetta var svo gott blogg, OK? ;)

Já svo ætla ég að óska Sólveigu til hamingju með tvítugs afmælið.. :*

Njótiði dagsins og borðiði bollur...! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 15:18:21 / helgabirgis

Samantekt

Góðann Daginn

Hmmm.. Frekar tóm í hausnum enn fyrst svo er skal ég punkta niður það sem ég gerði í stórborginni...:

  • Fór í Kringluna og Smáralind
  • Eyddi peningum og keypti mér meðal annars 5 skópör
  • Fór í IKEA og keypti ýmislegt inní herbergið
  • Sá varla sjónvarp og tölvu í 5 daga
  • Fór á Footloose
  • Fór út að borða
  • Fór á rúntinn og áttaði mig á því að hann er mun betri hér heima
  • Skoðaði Hússtjórnarskólann og íbúðina hennar Huldu systur og Eyvindar
  • Hitti fólk og fór ó heimsókn
  • Var með mömmu.. haha
  • Og gerði eitthvað fleira....

Smá stutt og óspennandi samantekt.. Núna bíð ég bara spennt eftir að byrja aftur í skólanum og fara að kaupa allar nýju bækurnar.. :$ En ég er farin að gera eitthvað að viti, eða vona það.. Bless


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 22:58:33 / helgabirgis

Góð helgi en ömurlegur sunnudagur

Ef þessi helgi er ekki efni í blogg þá veit ég ekki hvað.

Byrjum á Föstudeginum:

Byrjaði að fara í þýskupróf sem ég hef á tilfinningunni að ég hafi bara massað svona rækilega og rúllað upp svo fór maður að sjálfsögðu og lagði sig en eftir góðann dúr ákváðum ég og Katrín að skella okkur í fjallið. Það var þetta rosalega færi og frábæra veður en reyndar skítkalt svo maður fór bara í ullarbrókina og þrennar peysur frá 66°norður. Við vorum nú ekki komnar upp í fjall fyrr en um 5 leitið eða svo og komnar svo í brekkurnar 20 mínútum síðar. Jújú maður spyr sig afhverju 20 mínútum síðar en það var bara þannig að við ákváðum að klæða okkur í snjóbuxurnar, skónna og allt draslið inní bíl, en það var ekki að virka vel og þetta var ekkert að ganga en ég meina betra er seint en aldrei. Svo þegar maður var loksins kominn út úr bílnum og í brekkurnar þá var það svo ljúft. Eiginlega ekkert af fólki þarna og geðveikt skyggni og færið ekki verra. En neinei ég get ekki sagt að þessi fjallaferð hafa samt tekist mjög vel svona fyrir utan ruglið í bílnum þá vildi svo skemmtilega til að ég og Katrín vorum þarna uppí strítu í þessu massapúðri og þegar ég var komin út úr púðrinu þá sé ég bara hvernig bindingin mín er búin að slitna... Demm... Ekkert smá svekkjandi. En ég þessi toppbrettamaður renn mér niður úr strítu eins og hetja með brotna bindingu. Já ég veit Helga klára. En fyrst að klukkan var orðin svona margt þá nenntum við ekki að standa í því að reyna að redda bindingunni minni svo við ákváðum bara að segja þetta gott. Fórum í Bónus og keyptum okkur í kvöldmatinn því við erum svo heimilislegar og fórum svo heim til Trínu og elduðum þennnann gríðagóða kjúttling, pasta og einhverja ljúffengu sósu, mmmm.. Heyrðu já svo má ekki gleyma að segja frá því að við fórum í 3 búðir til þess að fá rétta Ben and Jerry's ísinn. Haha.. Sérþarfir? Svoo átum við og átum meira og vorum úldnar og gláptum á imbann. Jáá.. Og svo um svona 2 leitið þá svona ákváðum við loksins að drulla okkur aðeins út því að hann Billi átti nú afmæli. Svo Ég, Katrín, Billi og Styrmir fórum á Capone og dönsuðum við misgóða tónlist í misgóðum fíling við mismerkilegt fólk. Haha.. Katrín já þetta var merkilegt kvöld. Alveg sögulegur dagur held ég nú bara. Já og svo held ég að mér hafi næstum tekist að brjóta næstum allar umferðarreglur þennann dag en ég ætla ekkert að fara nánar út í það.. Hahaha..

Þetta verður alveg ógeðslega langt blogg því ég á eftir að segja frá restinni af helginni..

En Laugardagurinn:

Maður vaknaði ekkert alltof snemma og ég gerði ekki neitt að viti svona fyrri part dags nema ég fór á brettasjúkrahúsið eða eins og flestir vilja kalla það Skíðaþjónustuna og lét gera við brettið mitt.. Svo fór ég í litun hjá Hörpu systur og var þar og gerði ekki neitt merkilegt. Svo fór ég heim og gerði ekki neitt merkilegt og svo spurði Helena mig hvort ég vildi ekki taka nokkra hringi á rúntinum og ég að sjálfsögðu var til í það en ekki leið á löngu að þessi rúntur var orðinn algjör snilld. Við vorum bara með þessa topp partýtónlist á fóninumm og í bullandi fíling.. Og ég byrjaði að dansa, sitjandi og ég hef bara aldrei dansað svona mikið sitjandi áður. Já ég veit sérstakt. Enda voru ekkert allir að trúa þvi að ég væri bláedrú.. Haha.. En eftir góðann rúnt með henni Helenu minni fór hún inná Kaffi Ak og ég sem var komin í þannann rosa djammfíling neitaði að fara með henni því ég er nú í prófum. Svo ég fór yfir til Hauks og Brodda, og var sá rúntur ekki verri og voru ófáar ruglaðar samræðurnar sem fóru þar fram en ekkert leiðinlegar.. Hahaha.. En á endandum þurfti þessi rúntur að enda og ég fór heim í þeirri von um að geta farið bara upp í rúm og sofnað en neinei ég var svo þvílíkt hæper eftir þetta kvöld og í svo góðu skapi að ég fór að horfa á... já Sex and the City.. Að sjálfsögðu.. Svo sofnaði ég eftir nokkra þætti...

Enn urgg Sunnudagurinn:

Þessi dagur díí.. Eftir að ég vaknaði mjög seint er hann bara búinn að einkennast af leti, pirringi og leiðindum, reyndar líka svona hálftíma lagri strurtu sem minnkaði aðeins pirringinn.. Ég er eitthvað svo full af orku samt núna og langar svo að fá útrás, boxa eða fara bara uppá eitthvað fjall og hlaupa.. Láta allt hverfa í eitt augnablik allann pirring og hugsanir. Reyndar er búið að vera helv... gott að pikka hérna svolltið mikið á þetta blessaða lyklaborð. Ég er svo ekki að nenna að læra og ekki að nenna að eiga tvö próf eftir langar bara að þurfa ekki að hugsa um það.

En ég fer suður á miðvikudaginn og þá verður gleðin svo til staðar. Maður verður búinn með þessi svo ekki skemmtilegu próf og ég ætla að versla og versla. Ég ætla í IKEA og byrja líklegast að umturna herberginu mínu í næstu viku.. :D Get ekki beðið. Veggfóðrið liggur hérna bara og það verður svo kúl þegar það verður komið uppá vegg þar sem það á heima. En ég er ekki að nenna einmitt núna að segja frá öllum þessum framkvæmdum einmitt núna því að það næki svona sæmilega langann tíma og ég held að þetta sé orðið nógu ands... langt blogg..

En ef þú last þetta eða bara last endann þá vil ég endilega sjá sem flest komment. Ekki nema það sé til að segja hæj eða eitthvað.. TakkTak


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 21:16:14 / helgabirgis

Ritstífla

Gott kvöld

Ég er með svo gríðalega mikla ritstíflu. Ég hef ekkert til þess að blogga um. En mig langar bara til þess að blogga. Segja eitthvað sniðugt og skemmtilegt. En nei. Heppnin virðist ekki vera með mér þessa dagana. Í sambandi við "að blogga". Annars er ég að dúxa í lokaprófunum. Eða svona ég vona það. Ég er búin að fara í 5 af 9. Svo ég gæti kannski sagt ykkur útdrátt úr dönsku bókinni sem ég las fyrir munnlega prófið en það bara hljómar ekkert mjög spennandi.... Eitthvað um þjóðverja og einhver hóp sem hleypur út um allt og eyðileggur, kannski ekki hleypur beint. Bókin heitir btw Stikker ef þú hefur áhuga. Ég annars mæli ekkert rosalega með þessari bók. Jájáá.. Ég ætti svo að geta sannað 20 stærðfræðireglur en við skulum ekki fara út í það. Stærðfræðin er búin og þá ætla ég ekki að byrja að hugsa um þetta viðfangsefni fyrr en maður byrjar í 403. Ljúúfffft. En svo fer ég að hugsa "alveg rétt ég er að fara í sögupróf á fimmtudaginn", váá en gaman að læra fyrir það. 330 blaðsíður um svoo óspennandi efni. Hljómar spennandi, ekki satt.

Ritstífla

Ég held ég sé hætt. Farin að læra, horfa á sjónvarpið, hugsa eða tölvunördast. Aðeins einn veit.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 18:56:35 / helgabirgis

Bara eitthvað

Hmmmm.. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt það gamla....

Áramótin voru hress og skemmti ég mér bara nokkuð vel bæði á Kaffi Ak og í Sjallanum... Palli er án efa svalastur...

En ég hef ekkert að segja því það er nú ekki mikið sem er að gerast þessa dagana en ég var svo heppin að rekast á þennan lista og lofaði að láta hann hérna inn á hjá mér....

Svoo allir að svara :D Þetta er svoo gaman.. :D

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Takk fyrir og tjá..!


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 00:52:21 / helgabirgis

Það eru rauð jól

Ég vil óska öllum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Svo vil ég að sjálfsögðu þakka fyrir allt gamalt og gott. :D

Haha.. Talandi um að hafa þetta ekki of venjulega kveðju, ég virðist ekki hafa þennan jólaorðaforða í mér (ef má kalla þetta það)...

En allavegana í gær komu jólin og ég fékk góðan mat og góðar gjafir. (punktur)

Ég hef ekkert meira að segja um það, frekar tóm í hausnum akkurat núna...

En ég ætla mér ekki einu sinni að reyna að segja eitthvað sniðugt eða gáfulegt svo ég kveð.... Hafiði það gott um jólin :D;)

En hérna í lokin kemur smá jólakveðja fyrir þá sem voru ekki nógu ánægðir með orð mín hérna í byrjun :)

http://www.jacquielawson.com/viewcard.asp?cont=1&hdr=0&pv=XS01EN


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 21:22:25 / helgabirgis

Tilkynningar og hörmungar

Ég ætla að byrja á því að segja að ég var að bæta síðuna mína og setja "ýmislegt nytsamlegt" hérna inná... Mæli með að skoða það, þetta er mjög svo gagnlegar upplýsingar en samt misgagnlegar..

Svo ætla ég að tilkynna að ég er búin að vera símasambandslaus í að verða fjóra daga svo ef þú ert búin/nn að vera að reyna að ná í mig í gegnum farsíma þá er ég ekki búin að vera að svara (kannski eins og þú hefur tekið eftir) en það er þá ekki útaf því að mig langar ekki að tala við þig. En vonandi fer ég að fá nýja símakortið mitt.

 



Allavegna......

Ég er búin að vera að hugsa svo mikið að undarförnu og þá sérstaklega um loftlagsbreytingar og annað slíkt sem virðist vera að fara úr böndunum í þessum stað sem við lifum á.

Eins og flestir sem búa á þessu landi og hafi fylgst eitthvað með þá vita þeir líklega að allur snjórinn sem hefur safnast upp að undarförnu hefur bráðnað skyndilega. Ég hef mikið verið að fylgjast með fréttum af þessum atburðum og hef verið að hugsa mikið um þetta allt saman. Og hef ég spurt sjálfa mig af þónokkrum spurningum. Eins og:

 

 



  • Af hverju er þetta að gerast?
  • Hvað veldur því að þessi snjór og þessi kuldi sem var hér hefur bara skyndilega horfið?
  • Er eitthvað að gerast í lofthjúpunum og andrúmsloftinu sem veldur þessu?
  • Eða er þetta einfaldlega bara eitthvað annað?
  • Er einhver sem veit hvað er að gerast?

 

 



Ég hef ýmsar skoðanir og hugmyndir um það sem er að gerast.

Það getur ekki verið að það sé bara eðlilegt að hitinn hækki um einhver 20-30 stig á þremur dögum. Það bara hlýtur bara að vera að eitthvað sé að gerast þarna uppi sem ég held svo að sé að senda okkur einhver merki um að við séum of mörg og of heimsk til þess að lifa hérna. En ég samt svo sem veit það ekki.

Ég meina hvað getur verið eðlilegt við það að vindstig fari yfir 20 stig hérna, hitinn sem var í -15° sé að hækka í +20°, allur snjórinn, sem var ekki lítill, bráðni og myndar þar að leiðandi flóð sem hafa svo haft í för með sér ýmsar slæmar afleiðingar. Afleiðingarnar þessa veðurs hafa til dæmis verið:

 

 



  • Brú hefur brotnað og maður fallið ofan í á, sem betur fer bjargaðist hann
  • Aurskriður hafa fallið og eyðilegt margt og stofnað mörgum í hættu
  • Sumar götur og vegir hafa verið ófærðir út af vatni sem hefur safnast saman og flætt yfir vegi og götur
  • Annar bíll komst ekki leiðar sinnar vegna vatns og barst hann út í Eyjafjarðará
  • Stífla gaf sig og þar að leiðandi kom flóð
  • Og svo margt fleira…

 

 



En þetta er mest það sem hefur bara gerst í þessu nánasta umhverfi sem ég bý í. Það eru fleiri hörmungar að gerast út um allt land út af þessu veðri sem hefur verið hérna. Er þetta ekki að segja okkur eitthvað? En hvað er þetta að segja okkur?

Ég hef horft svo mikið á fréttir síðastliðna tvo sólarhringa að ég gæti örugglega skrifað miklu meira um þetta en ég held að ég sleppi því bara í bili. Það er svo margt annað sem maður þarf að gera því það eru víst að koma jól, svo ég er farin að jólast og efla jólaskapið mitt sem hefur aukist með hverjum degi. J

 

 



Veriði sæl að sinni og tjáið ykkur svo rækilega um þessar hörmungar, eins og ég vil kalla þær…

 

 




» 6 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 23:25:24 / helgabirgis

Jólablogg?

Gott Kvöld

Ég vil byrja þessa færslu á þvi að hugsa út í afhverju þetta blessaða bloggarakerfi sé svona ægilega helv... hægfara.....? Ég einfaldlega veit það ekki en datt samt í hug að það sé út af álagi á kerfinu, en á ekki þetta stóra og mikilfenglega kerfi sem svo margir Íslendingar notast við ekki að vera það öfulug og gott og fljótfaralegt (ha?) að fólk á ekki að þurfa að bíða eftir að komast inná síðu í liggur við tvær mínútur.. Mér finnst að fólk (eða þeir sem hafa áhuga) eigi að taka sér litla notalega stund undir öllu þessu jólastressi og hugsa aðeins um þetta mál.....

En talandi um jólin. Það vill svo skemmtilega til að það séu aðeins 6 dagar til jóla, það er að segja einum degi minna en vika. Það virðist vera að ég sé búin að missa af jólaskapinu allavegana er það ekki alveg að ná til mín.

Ég hreinlega veit ekki hvað ég á að gera, hvernig ég á að snúa mér og haga. Verð ég komin í jólaskapið fyrir jólin eða kemur það bara alls ekki í ár. Þetta eru allt spurningar sem ég vildi gjarnan vilja fá svör við en veit ekki hvert ég á að leita til þess að fá svör........

Ennnn.....

Í minni leit af jólaskapinu virðist hugurinn hafa reikað á gúgglið og ég rekst á þessa líka stórskemmtilegu mynd........

Ég veit ekki alveg hvaða skilaboð þessi mynd á að færa manni. En þið getið séð nánari upplýsingar á http://www.normalbobsmith.com/store/magnets.html  

Ég held ég sé bara hætt að rita hér og reyna að fara að vinna í að fara að sofa og leita af jólaskapinu í draumum mínum í þeirri von að finna það og vakna í svaka jólaskapi..

Gott Fólk, þið kunnið á þetta en best að segja það: tjáið ykkur..

Takk fyrir og Gleðileg Jól

Virðingarfyllst Helga Birgisdóttir


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 20:48:16 / helgabirgis

Helga að pæla

Hvað ætli orðtakið "Það eru fleiri fiskar í sjónum" sé oft notað?

Ég meina maður segir þetta nú nokkuð oft við góðar vinkonur/vini, kunningja og fólk svo bara almennt og svo ef maður er eitthvað sorry sjálfur þá fær maður alveg örugglega að heyra þessa blessuðu setningu.

Bara smá hugdetta og pæling hér á ferð, er farin að læra aftur.

PælingarHelga


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 18:56:18 / helgabirgis

Myndir

Var að setja inn myndir frá árshátíðinni..

Svoo enjoy.. ;)

Verið svo dugleg að kvitta og halda áfram að svara þessum stóskemmtilega lista..

Hef ekkert að segja svo bless.. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 23:20:53 / helgabirgis

Kuldi

Árshátíðin búin :$ En það var svoo gaman.. :D

Held að ég segji ekki mikið meira frá því, ég set myndir inná svona fljótlega.. :)

Mér finnst laufabrauð gott.. Skar út í held ég alveg fimm kökur á laugardaginn (hversu dugleg er ég?)

Hef eiginlega ekkert að segja svo ég ætla að segja svona lista inná tékka hvað þú veist mikið um mig.. Eins gott að þú svarir listanum...!

1. Nafn þitt:
2. Hvar kynntumst við:
3. Hvað er miðnafnið mitt:
4. Hefurðu hitt mig:
5. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er:
6. Hversu lengi hefurðu þekkt mig:
7. Hversu vel þekkiru mig:
8. Reyki ég:
9. Trúi ég á Guð:
10. Hvað Hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig:
11. Aldur minn:
12. Afmælisdagur:
13. Háralitur:
14. Augnlitur:
15. Á ég systkini?
16. Hefuru nokkru sinni öfundað mig:
17. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera:
18. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig:
19. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á:
20. Hver er minn besti eiginleiki:
21. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn:
22. Er ég fyndin/nn:
23. Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum:
24. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika:
25. Spila ég á e-ð hljóðfæri:
26. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera:
27. Höfum við kysst:
28. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni:
29. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast:
30. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast:
31. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman:
32. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni: 33. Hvaða vin held ég mest uppá:
34. Hef ég hjálpað þér:
35. Hefur þú hjálpað mér:
36. Þykir þér vænt um mig:
37. Er ég sannur vinur:
38. Elskarðu mig:

Hérna ég er að pæla.. Föður mínum tókst að setja 60 ljós inná baðherbergið hérna heima.. Er það ekki full mikið?

Dísess mér er búið að klæja í kálfann í svona um það bil sólarhring hvað er málið??

Heyriði ég nenni ekki að babla meira.. Allir að vera góðir við Helgu og gera þennann lista fyrir hana það er svo mikil skemmtun að lesa hvað fólk skrifar.. :)

Lag dagsins: Phantom Limb - The Shins


» 16 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 14:44:04 / helgabirgis

Tónleikar

Það er virkilega eins og þetta blessaða kerfi vilji bara virka svona þegar því hentar, allavegana ekki alltaf.. Ennn allavegana....

Stóra stundin fer að renna upp.

Tónleikarnir með Big Bandinu.

Klukkan 18:00 á eftir í Ketilhúsinu.

Maður er svona nett spenntur á taugunum fyrir þetta, en ég held samt að þetta eigi eftir að fara vel enda er maður búinn að æfa frekar helvíti mikið fyrir þetta.

En allavegana mæli með þessum tónleikum eða allavegana seinasta atriðinu (eða ég held að við séum síðust, er það ekki alltaf að flottasta atriðið er síðast?? :D)

Ég hef nú fáu að segja frá einmitt núna. Maður er búinn að gera eitthvað svo óskup lítið þessa helgi, horfa á imbann og sofa og æfa.. Fátt annað. Heyrðu jú ég var svo heppin að hún elskulega systir mín litaði hárið á mér næstum svart :S8| ég held að ég sé ekki að fýla það og ætli að biðja hana fallega um að gera það örlítið ''unsvart'' svo að maður líti út örlítið less gothlegur. :$

Það er að frétta af herberginu mínu að það bíður eftir að veggfóðrið, sem ég ætla að skella á einn vegg, komi með skipi eða flugi frá Þýskalandi svo að allt stendur eiginlega í stað í þessum framkvæmdum mínum en vonandi verður þetta búið fyrir jól.. :)

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna, farin að læra fyrir stærðfræðipróf :$ eða eitthvað annað..

Bara allir í Ketilhúsið klukkan 6!!

Hljómsveit dagins: The Kooks og Big Bandið klárlega líka.. :D (haha Helga nörd)

Já svona bara til að láta fólk vita að þá var ég að update-a þarna dótið um mig, held að ég hafi ekki verið búin að segja frá því.. :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 23:12:17 / helgabirgis

Hmmm??

Ég ætlaði að segja frá einhverju merkilegu ennn svo eiginelga bara fauk það út um gluggan þegar ég byrjaði að skrifa svo þetta verður örugglega alveg afskaplega ómerkilegt blogg ennn það má alltaf reyna... :)

Heyriði ég missti af Prison Break áðan því ég var á þessari líka svoooo tilgangslausu æfingu með Lúðrasveit Akureyrar, pfff.. Fyrsta æfingin mín þar í vetur og var ætlast til þess að ég mundi bara læra þetta yndilegu leiðinlegu lög á einni æfingu.. Tjaaa, ég efaðist og það gerist ekki.. Ég er ekki að fýla þessa lúðasveit en ég er svo ómissandi að ég lét sjá mig en ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég láti Big Band-ið nægja í bili enda svooo miklu skemmtilegra og fjörugara stöff sem maður er að gera það.. En úff nördaskapur hjá mér hérna, svona nokkuð mikið óspennandi blogg... Ég er hætt að skrifa um þessa svokallaða æfingu sem lét mig missa af Prison Break.. :cry:

Afhverju er alltaf svona mikið ást eitthvað í sjónvarpsþáttum??? Ég var að horfa á imbann í gærkvöldi og þá meðal annars á One Tree Hill og Grey's Anatomy og virtist vera að allir í þessum þáttum væru ástfangir af einhverjum og allir annað hvort saman eða að fara að byrja saman... Afhverju sýnist þetta virka svo auðvelt þegar maður sér þetta í imbanum eða i bíómyndum???? Er raunveruleikinn virkilega svona mikið öðruvísi eða er ég bara svona virkilega óheppi...?? En allavegana svona solltið mikið ást í þessu sjónvarpi.. Veit ekki hvort ég eigi eitthvað að vera á móti því, held ekki sko.. Ég get allavegana ekki komið með rök fyrir að ég sé á móti ást í sjónvarpi.. Úff núna er ég allt of mikið byrjuð að hugsa þetta á einhvern siðferðislegan hátt svo ég held að ég sé bara hætt að tuða um þetta ástarmál hérna..

En talandi um siðferði, í gær voru ég og hópurinn minn (ekki að ég eigi eitthvað þennan hóp) já við vorum að flytja fyrirlestur um fóstureyðingar i lífsleikni í gær svona siðferðisverkefni og áttum að pæla virkilega í hvort að það væri rétt eða rangt að fara i fóstureyðingu. Ég fékk vægt sjokk þegar ég sá hvað margir í bekknum voru virkilega hlynntir fóstureyðingum en eftir þetta verkefni lít ég svo allt öðruvísi á fóstureyðingar og finnst allt of mikið að konur séu að fara í fóstureyðingar bara út af því að þær hafa ekki farið nógu varlega í sínu kynlífi. Afhverju er þetta svona algengt?? Ég held að það séu mjög fáir sem gera sér grein fyrir hvað fóstur er fljótt að þroskast eftir frjóvgun eggs og maður fer virkilega að spyrja sig hvort að fóstureyðing sé morð en í 8 vikna gömlu fóstri getur maður séð móta fyrir höndum og fótum og er þá hægt að mæla heilastarfsemi fóstrins.. En þrátt fyrir þetta allt eru að meðal tali um 800-900 fóstureyðingar framkvæmdar hér á landi og er verið að eyða fóstrum sem eru allt að þriggja mánaða gömul.. Allt of margir eru að fara í fóstureyðingu því að ekki hefur verið farið nógu varlega í kynlífi.. Ég er virkilega á móti því að stelpur séu að fara í fóstureyðingu vegna þess að hafa ekki farið nógu varlega í sambandi við kynlíf.. Ég held að það séu fæstir sem vildu þurfa að fara í fóstureyðingu eða taka þá ákvörðun en samt eru svo margir sem staðhæfa það að þær mundu fara í fóstureyðingu ef að þær mundu verða fyrir slysni óléttar, ég held að það sé samt allt annað að segja það en að gera það. Úff ég held að ég sé hætt en endilega segið skoðun ykkur á fóstureyðingum.......

Váá drama í So You Think You Can Dance.. haha

Veriði dugleg að kvitta :);)

Er farin að horfa a 24.. :) Góða nótt!


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4